Stjórn MIH ósátt við ummæli seðlabankastjóra

27. ágú. 2024

Ályktun stjórnar Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði (MIH).

Efni: Vegna ummæla seðlabankastjóra á kynningarfundi um óbreytt vaxtastig 21. ágúst 2024.

Ályktun stjórnar Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði (MIH).

Efni: Vegna ummæla seðlabankastjóra á kynningarfundi um óbreytt vaxtastig 21. ágúst 2024.

Stjórn Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði (MIH), sem er fagfélag löggiltra iðnmeistara í byggingariðnaði, harmar ummæli seðlabankastjóra á kynningarfundi bankans um óbreytta vexti miðvikudaginn 21. ágúst 2024. Öllum sem starfa í byggingariðnaði er ljóst að háir stýrivextir eru að draga úr nauðsynlegri uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Aukna íbúðauppbyggingu þarf að hefja strax en skortur á íbúðarhúsnæði hefur komið fram í hraðri hækkun íbúða- og leiguverðs, mikilli og þrálátri verðbólgu og háum stýrivöxtum sem bitna um þessar mundir á öllum landsmönnum. 

Ummæli seðlabankastjóra „Allir komnir að smíða sem geta haldið á hamri“ eru taktlaus og röng. Það eru fyrst og fremst háir stýrivextir og viðvarandi lóðaskortur sem hefta íbúðauppbyggingu um þessar mundir. Þetta kom m.a. skýrt fram í nýlegri greiningu Samtaka iðnaðarins sem gerð var meðal verktaka sem sinna íbúðauppbyggingu. Seðlabankastjóri getur ekki firrt sig ábyrgð á þeim framboðsvanda sem er til staðar á íbúðamarkaði en sá vandi er að stórum hluta tilkominn vegna hárra stýrivaxta..

Stjórn Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði lýsir yfir fullum vilja og getu félagsmanna sinna til að taka þátt í aukinni uppbyggingu húsnæðis til framtíðar. Til þess þarf þó aukið framboð lóða hjá sveitarfélögum og lækkun stýrivaxta.  

Ályktun þessi var samþykkt á stjórnarfundi MIH 23. ágúst 2024

Virðingarfyllst

Fh. Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði

Jón Þórðarson formaður MIH